Um AnnK
AnnK er vefverslun með vel völdu úrvali þar sem einfaldleiki og gæði mætast.
Valið er af natni með áherslu á tímalausar vörur sem falla náttúrulega inn í daglegt líf og skapa hlýtt og rólegt andrúmsloft.
Hugmyndin að AnnK kviknaði út frá löngun til að bjóða upp á vel valdar vörur sem skapa hlýja stemningu með einföldum hætti. Vörur sem þurfa ekki að vera áberandi til að njóta sín heldur falla eðlilega inn í daglegt líf.
Við leggjum áherslu á vönduð efni og meðvitað val. Margar af vörunum eru handgerðar úr náttúrulegum eða endurunnum efnum og valdar með það að leiðarljósi að endast í notkun og stíl.
Unique LED kertin voru upphafspunktur AnnK. Kerti sem sameina notalega stemningu hefðbundinna kerta við öryggi og endingu LED ljóss. Þau eru handgerð úr vaxi og mótuð með einkaleyfisvarinni aðferð sem gefur náttúrulegt og lifandi útlit.